Lög Stúdentafélagsins
Lög Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík
Samþykkt þann 9. apríl 2010I. kafli. Heiti félags, heimili og hlutverk
1. gr. Félagið heitir Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR), á ensku The Student Association of Reykjavik University. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Starfstími stjórnar SFHR og reikningsár skal vera á milli aðalfunda.
2. gr. Hlutverk Stúdentafélagsins er að standa vörð um hagsmuni stúdenta við Háskólann í Reykjavík. Auka einingu meðal félagsmanna og stuðla að upplýstri akademískri umræðu meðal félagsmanna.
II. kafli. Aðild að félaginu
3. gr. Allir þeir er stunda nám við Háskólann í Reykjavík njóta aðildar að félaginu.
III. kafli. Aðalfundur
4. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skal halda í mars ár hvert. Til hans skal boðað með tryggilegum hætti, hið minnsta tveimur vikum fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann
ólögmætur, dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Formaður setur fundinn og skipar fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á aðalfundi skal fylgja fundarsköpum sem stjórn hefur samþykkt. Til þess að tillaga á aðalfundi hljóti samþykki þarf samþykki
meirihluta fundarmanna, slíkt á þó ekki við um tillögur um breytingu á lögum félagsins sem fara eftir þessum lögum. Tillögur um efni sem er ekki á fundarboði skulu ekki teknar til afgreiðslu nema 2/3 hluti fundarmanna hafi samþykkt afgreiðslu
slíkrar tillögu.
Á aðalfundi skulu kosnir 2 skoðunarmenn til þess að endurskoða reikninga félagsins.
Skal slíkri endurskoðun lokið hið minnsta 3 dögum fyrir aðalfund. Skulu skoðunarmenn gera grein fyrir störfum sínum á aðalfundi undir liðnum “Gjaldkeri skilar skýrslu um fjármál ársins”.
5. gr. Fráfarandi varaformaður skrifar fundargerð aðalfundar.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi.
i. Kjör fundarstjóra.
ii. Formaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík fer yfir starf ársins.
iii. Gjaldkeri skilar skýrslu um fjármál ársins.
iv. Lagabreytingar.
v. Skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður kosninga.
vi. Stjórnarskipti.
vii. Önnur mál.
IV. kafli. Stjórn
6. gr. Stjórn Stúdentafélagsins skipa formaður, varaformaðurog gjaldkeri auk eins eða tveggja meðstjórnenda kosnir listakosningu, 3-5 á lista.
7. gr. Formaður Stúdentafélagsins, í hans fjarveru varaformaður, stjórnar fundum og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður Stúdentafélagsins hefur yfirumsjón með framkvæmdum á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess. Formaður situr í Háskólaráði. Formaður hefur prókúru og ritar firma félagsins.
8. gr. Varaformaður, skal rita fundargerðir stjórnarfunda og sjá til þess að fundargerðir séu samþykktar af stjórn Stúdentafélagsins. Varaformaður situr í Námsráði. Varaformaður ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með öllum útgáfumálum félagsins (þó ekki útgáfu Háskólablaðsins), umsjón og svörun aðsendra bréfa og heimasíðu félagsins. Varaformaður er tengiliður SFHR við lánasjóðsfulltrúa skólans.
9. gr. Gjaldkeri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins. Gjaldkeri útbýr fjárhagsáætlun Stúdentafélagsins og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Ársuppgjör skal vera aðgengilegt félagsmönnum þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Gjaldkeri hefur prókúru.
10. gr. Til að stjórnarfundur sé ályktunarbær þurfa allir stjórnarmenn að vera mættir. Til þess að ákvarðanir stjórnar séu bindandi og löglegar þarf meirihluta samþykki ályktunarbærs stjórnarfundar að vera til staðar.
11. gr. Vilji stjórnarmaður víkja sæti skal hann tilkynna stjórn SFHR það skriflega a.m.k. tveimur vikum áður en hann víkur sæti. Skal viðkomandi nýta þessar tvær vikur til þess að ganga frá þeim málum sem viðkoma SFHR og hann hefur með höndum.
12. gr. Stjórnarmaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík getur lýst vantrausti á annan stjórnarmann leggi hann fram skriflega beiðni til stjórnar með undirskrift 10% félagsmanna hið minnsta og skal sá síðarnefndi víkja sæti ef einróma samþykki annarra stjórnarmanna hlýst. Stjórnarmaður sem víkur sæti þarf að ganga frá sínum málum í samræmi við efni 11. gr. Komi til þess að stjórnarmaður af einhverjum ástæðum víki sæti skal stjórn skipa annan í hans stað, eigi síðar en tveimur vikum síðar. Auglýst skal tryggilega meðal félagsmanna SFHR eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í starfi stjórnar, eigi síðar en viku eftir að stjórnamaður víkur sæti og skal stjórn skipa einn af þeim aðilum sem lýsa áhuga sínum til þess að starfa í stjórn SFHR.
13. gr. Ef félagsmaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík hyggst lýsa vantrausti á stjórnarmeðlim skal sá hinn sami leggja fram skriflega beiðni til stjórnar, með undirskrift 10% félagsmanna hið minnsta og skal þá stjórn boða til félagsfundar innan viku frá því að slík beiðni barst. Fyrirkomulag fundarins fer eftir ákvæðum 14. gr. Komi til þess að stjórnarmaður víki sæti skal stjórn skipa annan í hans stað.
V. kafli. Félagsfundur
14. gr. Stjórn félagsins getur boðað til almenns félagsfundar til að ræða málefni félagsins. Formaður félagsins setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á félagsfundum SFHR skal fylgja fundarsköpum sem stjórn hefur samþykkt. Framlögð tillaga á félagsfundi hlýtur samþykki ef 2/3 hlutar fundarmanna greiða henni atkvæði sitt. Seturétt á félags‐ og aðalfundum eiga allir félagsmenn
Stúdentafélagsins.
Félagsmenn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík geta krafist almenns félagsfundar, til að ræða málefni er varða Stúdentafélagið, með skriflegri beiðni, þar sem fram kemur efni og ástæða fundarins, og undirskrift hið minnsta 10% félagsmanna. Stjórn Stúdentafélagsins er skylt að halda slíkan fund innan tveggja vikna frá framlagningu beiðninnar. Boða skal til fundarins með viku fyrirvara hið minnsta með tryggilegum hætti, t.d. með tölvupósti, þar sem efni fundarins er tilgreint. Dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Ekki er heimilt að taka fyrir önnur mál á félagsfundi, er félagsmenn hafa beðið um, en þau er koma fram í fundarboði.
VI. kafli. Framkvæmdastjórn
15. gr. Framkvæmdastjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skipa; formaður Atlas, formaður Lögréttu, formaður Markaðsráðs, formaður Pragma, formaður Technis, formaður Mentes og formaður Tvíundar.
16. gr. Hlutverk framkvæmdastjórnar SFHR er að auka einingu á milli deilda Háskólans í Reykjavík og vera stjórn SFHR innan handar við ákvarðanatöku í stærri málum.
17. gr. Formaður SFHR skal boða til fundar með framkvæmdastjórn á 14 daga fresti, hið minnsta. Framkvæmdastjórnarfundur er ályktunarbær um þau málefni sem til umfjöllunar eru á framkvæmdastjórnarfundi þegar 2/3 þeirra sem sæti eiga í framkvæmdastjórn eru mættir. Stjórn Stúdentafélagsins ber að hafa ályktanir framkvæmdastjórnarfundar að leiðarljósi við ákvarðanatöku í daglegri starfsemi.
VII. kafli. Háskólablaðið
18. gr. Ritstjórn Háskólablaðsins er skipuð fimm aðilum, ritsjóra, fjármálastjóra, markaðsstjóra, auglýsingastjóra og listrænum stjórnanda, kosnum í persónukjöri. Komi ekki framboð til ritstjórnar skal stjórn Stúdentafélagsins skipa í ritstjórn fyrir
apríllok hvert ár. Hlutverk ritstjórnar er að gefa út Háskólablaðið, í það minnsta einu sinni á skólaári. Ritstjórn skal skila stjórn Stúdentafélagsins áætlun yfir starfsemi ritstjórnarinnar á skólaárinu, áður en kennsla hefst á haustönn.
19.gr. Ritstjóri hefur yfirumsjón með efnistökum Háskólablaðsins og ber ábygð á öllu útgefnu efni á vegum blaðsins. Ritstjóri stjórnar ristjórnarfundum og skal í samráði við fjármálastjóra ákveða fjölda útgáfa, útgáfudag og umfang blaðs á því skólaári sem hann stýrir blaðinu. Ritstjóri hefur prófkúru og ritar firma félagsins.
20.gr. Fjármálastjóri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins og útbýr fjárhagsáætlun Háskólablaðsins. Hann hefur yfirumsjón á verðlagningu auglýsinga á vegum Háskólablaðsins eða öðrum atburðum/varningi sem Háskólablaðið hefur til sölu. Ársuppgjöri Háskólablaðsins skal skilað til gjaldkera Stúdentafélagsins þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Fjármálastjóri hefur prókúru.
21.gr. Markaðsstjóri sér um markaðssetningu blaðsins og ákvarðar í sameiningu með fjármálstjóra dreifingu, kynningu og aðra utanaðkomandi umfjöllun um Háskólablaðið.
22.gr. Auglýsingastjóri hefur umsjón með auglýsingasölu í Háskólablaðið og annað útgefið efni á vegum blaðsins s.s. á heimasíðu og kynningarefni.
23.gr. Listrænn stjórnandi hefur umsjón á útliti blaðsins og öðru útgefnu efni á vegum blaðsins, í samráði við ritstjóra. Hér er átt við útlit myndatakna, umbrot, hönnun o.s.frv.
24.gr. Ritstjórn er heimilt að taka sér í ritnefnd allt að fimm einstaklinga.
25. gr. Háskólablaðið skal gefið út undir sér kennitölu. Ritstjóri ákveður efni blaðsins og er ábyrgðarmaður útgáfunnar hvað varðar efnistök.
VIII. kafli. Kosningar
26. gr. Kosningar í stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skulu fara fram fyrir
aðalfund sbr. III. kafla. Boða skal til kosninga með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara, skal
það auglýst með tryggilegum hætti, m.a. með tölvupósti til nemenda, ella teljast
kosningarnar ólögmætar. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund.
Kosning skal standa yfir í þrjá sólarhringa. Kosning hefst á hádegi þremur
sólarhringum fyrir auglýstan aðalfund og lýkur á hádegi á sama degi og aðalfundur fer
fram.
27. gr. Kosningarétt hafa allir félagsmenn SFHR. Kjörgengi hafa allir félagsmenn er hyggja á
áframhaldandi nám við skólann. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða
staðfest í gegnum skólanetfang frambjóðanda. Auglýsa skal eftir framboðum minnst
þremur vikum fyrir aðalfund. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund.
28. gr. Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa sjö aðila í kjörstjórn. Leitast skal við að gæta
jafnræðis milli aðildarfélaga við skipan kjörstjórnar. Kjörstjórn skal sjálf kjósa sér
formann, atkvæði formanns vegur tvöfalt ef atkvæði eru jöfn við afgreiðslu máls
innan kjörstjórnar. Þeir sem sæti eiga í kjörstjórn hafa fyrirgert rétti sínum til
framboðs í viðkomandi kosningum. Kjörstjórn skal skipuð hið minnsta fjórum vikum
fyrir aðalfund. Kjörstjórn skal skipuleggja kosningar og sjá um framkvæmd þeirra í
samvinnu við stjórn SFHR. Kjörstjórn skal gæta hlutleysis og er hún bundin
þagnarskyldu um framgang kosninga.
29. gr. Kosningar skulu fara fram með rafrænum hætti og skal kjörstjórn sjá til þess að
öllum kröfum um öryggi og skilvirkni sé fullnægt. Kosningar skulu vera leynilegar.
30. gr. Ef einungis er einn listi eða einstaklingur í framboði þarf hann aukinn meirihluta
(2/3 hluta) greiddra atkvæða til að hljóta kosningu. Ef ekki hefur hlotist lögleg
kosning skal fráfarandi stjórn auglýsa eftir framboðum á ný, þó ekki síðar en 10
dögum eftir aðalfund og boða til nýrra kosninga. Skal að öðru leyti fara um
framkvæmd kosninganna eftir ákvæðum þessara laga.
31. gr. Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa þrjá aðila í kærunefnd vegna kosninga, og tvo til
vara, alls fimm aðila. Skal skipan kærunefndar lokið viku fyrir lok kosninga hið
minnsta. Þeir sem sæti eiga í kærunefnd hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í
viðkomandi kosningum. Við val á aðilum í kærunefnd skal leitast til við að skipa aðila
sem koma úr mismunandi deildum og skal skipa einn aðila sem ekki er nemandi í
Háskólanum í Reykjavík. Kærunefndin skal a.m.k. skipuð einum aðila sem lokið hefur
grunnnámi í lögfræði. Nefndarmenn skulu gæta hlutleysis og eru bundnir
þagnarskyldu um störf nefndarinnar umfram það sem gert hefur verið opinbert. Komi
til þess að vafi leikur á hæfi einstakra nefndarmanna skal kærunefnd öll, þ.m.t.
varamenn taka ákvörðun um hæfi viðkomandi. Skal nefndin hafa til hliðsjónar
hæfisreglur stjórnsýslulaga við þá ákvörðun.
32. gr. Kærur vegna kosninga skulu berast kærunefnd skriflega eigi síðar en þremur
virkum dögum eftir að kosningum lauk. Kærunefnd skal kveða upp úrskurð um efni
kæru eigi síðar en viku eftir að kærufrestur rann út. Kærunefnd hefur endanlegt
úrskurðarvald um efni kæru.
33. gr. Komist kærunefnd að því að kosning, í heild eða að hluta til, hafi ekki verið
framkvæmd samkvæmt ákvæðum laga þessara um framkvæmd kosninga, skal
kjörstjórn boða til nýrra kosninga. Skulu framboð sem bárust vegna fyrri kosninga gild
í slíkum kosningum. Skal boðað til nýrra kosninga eigi síðar en viku eftir að
kærunefnd skilar úrskurði sínum. Að öðru leyti skulu sömu reglur gilda um
framkvæmd aukakosninga og aðalkosninga
IX. kafli. Slit á félaginu
34. gr. Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún þá sæta sömu meðferð og
tillaga til lagabreytinga, skv. 38. gr. Eignir félagsins ganga til Háskólans í Reykjavík til
varðveislu þegar félaginu er slitið þar til stúdentar stofna annað félag í sama tilgangi
sem telst arftaki Stúdentafélagsins og fær því eignir þess.
X. kafli. Breytingar og gildistaka
35. gr. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða sérstaklega boðuðum
lagabreytingafundi, boðuðum með 10 daga fyrirvara hið minnsta og þurfa 2/3 hlutar
fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni til að hún verði samþykkt.
Stjórn er skylt að boða til lagabreytingarfundar ef 10% félagsmanna óskar þess. Stjórn
er heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt til að
koma með tillögur að lagabreytingum. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar
eigi síðar en 7 dögum fyrir boðaðan fund. Tillögur skulu auglýstar á tryggilegan hátt. Í
fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til
meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst.
Heimilt er á aðalfundi eða lagabreytingarfundi að koma með breytingartillögu við
löglega framkomna breytingartillögu svo lengi sem tillaga fundarins breytir ekki efni
upphaflegu breytingartillögunnar að upplagi.
Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða öðrum
lagabreytingarfundi. Á lagabreytingafundi skal fylgja fundarsköpum sem stjórn SFHR
hefur samþykkt.
36. gr. Stjórn SFHR skal skipa lagabreytinganefnd til þess að sjá um endurskoðun á lögum
félagsins fyrir aðalfund ár hvert. Skal nefndin skipuð 3 aðilum. Störf nefndarinnar
skulu hefjast í síðasta lagi 1. febrúar ár hvert. Lagabreytinganefnd starfar í samvinnu
við stjórn SFHR og skal skila frumvarpi sem lagt verður fyrir aðalfund mánuði fyrir
boðaðan aðalfund. Skal það frumvarp sent út með fundarboði aðalfundar til þess að
félagsmenn SFHR geti kynnt sér efni þess.
38. gr. Lög þessi skulu ávallt vera aðgengileg á heimasíðu SFHR www.studentafelag.is og
vera öllum félagsmönnum aðgengileg á þann hátt.
39. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og falla eldri lög SFHR úr gildi.
