Helstu störf Alþjóðaráðs Háskólans í Reykjavík eru að taka vel á móti skiptinemum þegar þau koma til landsins og vera þeim innan handar á meðan þau eru að koma sér fyrir og kynnast landi og þjóð. Við erum einnig til taks fyrir þau út önnina og aðstoðum við hvað sem kemur uppá, hvort sem það eru vandamál tengd skóla eða lífinu á Íslandi.
Alþjóðaráð sér um að skipuleggja ýmsar ferðir og viðburði fyrir skiptinemana um Ísland svo að þau kynnist landi og þjóð betur. Síðastliðinn vetur höfum við til dæmis farið í mjög vel lukkaðar ferðir til Vestmannaeyja, Akureyrar og austur í Skaftafell og skipulagt „welcome pizza party“ fyrir skiptinemana þegar þau voru nýkomin til landsins.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu starfi með okkur á næsta ári endilega sendu okkur línu á intstudents@ru.is
Alþjóðaráð HR 2011-2012
Sonja Hrund Ágústsdóttir, formaður sonja09@ru.is
Hafdís Halldórsdóttir hafdish08@ru.is
Ingibjörg Jónasdóttir ingibjorgjon08@ru.is
Shishir Patel shishir09@ru.is
