Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR
Lögfræðiþjónusta Lögréttu

Laganemar við Háskólann í Reykjavík veita einstaklingum endurgjaldslausa lögfræðilega ráðgjöf. 

Málin geta verið á hvaða sviði sem er, t.a.m. ef óvissa er um skattamál, réttindi á atvinnumarkaði, réttindi íbúa í fjöleignarhúsi, hjúskapar- eða erfðamálefni.

Opnunartími er alla miðvikudaga frá kl. 17-20 í aðalinngangi Háskólans í Reykjavík (Sólinni), Menntavegi 1, 101 Reykjavík. Einnig er hægt er að hafa samband símleiðis í síma 777 8409 eða senda fyrirspurn á netfangið logfrodur (at) ru.is
 
Heimasíða Lögfróðs er logfrodur.hr.is

Framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar er Fura Sóley Hjálmarsdóttir og meðstjórnendur eru Anna Kristín Kristjánsdóttir, Ásrún Eva Harðardóttir og Ljósbrá Logadóttir.

Free Legal Aid from Law Students at Reykjavík University
Law students at Reykjavík University offer free legal aid for all individuals.
Advice will be available on any legal issues, such as taxes, labour market rights, the rights of tentants, marriage and inheritance related matters.

Open every Wednesday from 17-20pm at Reykjavík University main entrance, Menntavegi 1, 101 Reykjavík. You can also reach us by phone +354 777 8409 or send us an e-mail at legalaid (at) ru.is

Web page: logfrodur.ru.is

Um Lögfræðiþjónustu Lögréttu 
Lögfræðiþjónusta Lögréttu var sett á stofn í mars 2007 í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Alþjóðahús. Í upphafi var áhersla lögð á að veita innflytjendum og fólki af erlendum uppruna ókeypis lögfræðiaðstoð enda fór þeim ört fjölgandi hér á landi og var þörfin því til staðar. Í kjölfar þess að aðsókn innflytjenda í þjónustu lögfræðiþjónustunnar dróst saman, haustið 2008, var tekin sú ákvörðun að bjóða öllum, jafnt innflytjendum sem Íslendingum, upp á þjónustu Lögfræðiþjónustunnar. Lögfræðiþjónustan var upphaflega með aðstöðu í Alþjóðahúsi en frá og með áramótunum 2009/2010 hefur þjónustan verið með aðstöðu í Háskólanum í Reykjavík. Árið 2010 var bætt við nafn lögfræðiþjónustunnar, hún ber í dag nafnið Lögfróður – Lögfræðiþjónusta Lögréttu. 
Hjá Lögfróði – Lögfræðiþjónusta Lögréttu veita laganemar á 3.-5. ári endurgjaldslausa lögfræðilega ráðgjöf og öðlast með því dýrmæta reynslu. Þau mál sem Lögfróður hefur fengið til úrlausnar hafa verið á hinum ýmsu sviðum lögfræðinnar en þau algengustu varða, svo dæmi séu tekin, réttindi starfsmanna á atvinnumarkaði, réttindi íbúa fjöleignarhúsa, hjúskapar- og erfðamálefni og réttindi leigjenda íbúðarhúsnæðis. Ef vandamálið er þess eðlis að við getum ekki leyst það þá beinum við fólki áfram til viðeigandi aðila, svo sem lögreglu eða lögmanna.
Jafnframt því að vera með opið einu sinni í viku þá hefur Lögfróður veitt sértæka lögfræðilega ráðgjöf. Ber þar fyrst að nefna skattadaginn en þá getur fólk komið og fengið aðstoð við útfyllingu skattframtala, einnig var Lögfróður með viðburð í Hugmyndahúsi í athafnavikunni haustið 2009, þar sem veitt var ráðgjöf á sviði hugverkaréttinda. Þessir viðburðir hafa verið vel sóttir og mikil ánægja verið með ráðgjöfina.
Í ár rær Lögfróður á ný mið og leggur áherslu á réttindafræðslu fyrir ungt fólk. Lögfróður mun heimsækja framhaldsskóla landsins og halda kynningar á þeim réttarsviðum sem helst snúa að ungu fólki, þar má nefna vinnurétt, skattarétt og almenna fjármálafræðslu.
Þá hefur Lögfróður einnig opnað nýja og glæsilega heimasíðu logfrodur.hr.is 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica