Háskólablaðið er nýtt, veglegt og framsækið málgagn gefið út af nemendum við Háskólann í Reykjavík. Með útgáfu blaðsins viljum við leyfa rödd háskólanema ná til þjóðfélagsins alls.
Efnistök blaðsins eru í höndum nemenda og endurspegla þá flóru einstaklinga sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík.
Viðtöl, pistlar, greinar, myndaþættir og svo mætti lengi telja verða því meðal umfjöllunarefna blaðsins. Með blaðinu viljum við einblína á jákvæða þróun í samfélaginu þrátt fyrir undangenga erfiðleika.
Einkunnarorð blaðsins eru kraftur, jákvæðni, framtíðin og nýsköpun.
Upplag: Háskólablaðið er gefið út í 10.000 eintökum.
Dreifing: Háskólablaðinu verður dreift á fjölfarna staði á höfuðborgarsvæðinu, í markpósti til allra nemenda skólans, á skólakynningum Háskólans í Reykjavík og verður auk þess aðgengilegt á rafrænu formi.
Útlit: Blaðið er í liggjandi A4 broti og prentað á gæðapappír. Innsíður prentaðar í 4 lit á 115 gr. royal roto silk.
Kápa prentuð í 4 lit á 250 gr. Ottosilk + hlífðarlakk að utan. Fræst í kjölin.
Allar nánari upplýsingar um blaðið má finna á www.haskolabladid.is eða haskolabladid@ru.is

