Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

HR 1 - HÍ 0

2.11.2009

Stúdentafélag HR ásamt Stúdentaráði HÍ stóðu fyrir góðgerðarleik í knattspyrnu á laugardaginn, lið Háskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum 1-0!
 
Alls söfnuðust rúmlega 300.000 krónur á leiknum, en allur ágóði rann óskiptur til KRAFTS, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
 
Okkur langar að þakka þeim fjölmörgu sem komu að leiknum: Willum Þór Þórssyni, þjálfara liðsins, ásamt Svöfu Grönfeldt rektor og aðstoðarþjálfara, HR klappstýrunum, Kristni Jakobssyni og hans aðstoðarmönnum, Valtý Birni, starfsfólki Kórsins í Kópavogi, starfsfólki Krafts og síðast en ekki síst öllum leikmönnum liðsins fyrir að klára dæmið svona snilldarlega!
 
Til hamingju HR-ingar!

hr-sigurmynd




 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica