Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Nýr skiptibókamarkaður á netinu fyrir framhalds- og háskólanema

skiptibokamarkadur.is

18.8.2009

Mánudaginn, 10.ágúst, var opnaður nýr vefur, www.skiptibokamarkadur.is þar sem nemendur á
framhalds- og háskólastigi geta keypt og selt notaðar skólabækur milliliða- og kostnaðarlaust.

Þar geta þeir sem vilja selja/óska eftir bók skráð sig inn á síðuna og skráð viðkomandi bók í framhaldinu. Notkun á vefnum er algjörlega gjaldfrjáls.Tilgangur síðunnar er að á einum stað á netinu geti allir framhalds- og háskólanemar á Íslandi
auglýst bækurnar sínar til sölu, eða óskað eftir þeim.

Algengt er að bókakostnaður framhalds- og háskólanema sé á bilinu 30 til 60 þúsund krónur á önn að því gefnu að bækurnar séu keyptar nýjar. Því getur það munað töluverðum fjármunum á því að kaupa notaðar bækur auk þess sem seljendurnir fá eitthvað fyrir bækurnar sínar sem hefðu margar hverjar hefðu legið ónotaðar upp í bókahillu. Varla þarf að minnast á hversu umhverfisvæn þessi leið er til þess að gefa gömlu skólabókunum nýtt líf.

Hvetjum alla nemendur HR til þess að kynna sér betur málin á www.skiptibokamarkadur.is


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica