Ljósmyndasamkeppni Háskólablaðsins
Senn líður að útgáfu veglegs háskólablaðs á vegum nemenda í HR og eitt af markmiðum blaðsins er að gefa nemendum skólans tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr.
Við ætlum að halda ljósmyndakeppni og munu valdar myndir birtast í blaðinu.
Besta myndin að mati dómefndar mun svo hljóta 10.000 króna gjafabréf frá Levi's í verðlaun.
Blaðið verður gefið út í talsvert stóru upplagi og er þetta því frábær vettvangur til þess að koma nafni sínu og hæfileikum á framfæri. Við hvetjum þess vegna alla til þess að taka þátt óháð reynslu eða tækjabúnaði.
Reglur keppninnar eru einfaldar.
Eingöngu stafrænar myndir koma til greina því miður, en auðvitað getið þið skannað inn filmu myndir.
Að sjálfsögðu má ekki senda inn myndir eftir aðra ljósmyndara.
Helstu upplýsingar þurfa að fylgja með ljósmyndinni, þ.e. nafn ljósmyndara (netfang og námsbraut), nafn myndar, tími og staður (t.d. Júní 2008, Gróttu á Seltjarnarnesi) og ekki er verra ef þið hafið kannski smá lýsingu á myndefninu með.
Myndvinnsla t.d. með Photoshop eða Lightroom er leyfð en telji dómnefnd myndina of breytta áskilur hún sér rétt til þess að dæma hana úr leik. Gott er að hafa í huga að þetta er fyrst og fremst ljósmyndakeppni.
Myndirnar þurfa ekki að hafa verið teknar innan þess frests sem hér er gefin, þær mega vera eldri. Við biðjum hinsvegar fólk að senda einungis inn myndir sem ekki hafa birst áður (nema t.d. á síðum eins og flickr).
Myndirnar skal senda á haskolabladid@ru.is
Skilafrestur er til 1. nóvember, nk.
Kær kveðja,
Ritstjórn Háskólablaðsins.
Nánari upplýsingar um Háskólablaðið og netföng ritstjórnar má finna á: http://www.haskolabladid.is
