Kynningarmyndband HR
Markaðsdeild HR og Stúdentafélagið leita að hressum nemendum til þess að vinna að gerð KYNNINGARMYNDBANDS Háskólans í Reykjavík! Í því felst meðal annars að koma að því að semja handrit sem og vera tökumönnum og leikstjóra innan handar.
Myndbandið verður notað í kynningum á vegum skólans sem og á STÓRA HÁSKÓLADEGINUM í febrúar 2010.
Æskilegt er að viðkomandi hafi brennandi áhuga á markaðsstarfi, sé hugmyndaríkur og hafi mikinn metnað fyrir HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK!
Áhugasamir eru beðnir um að senda okkur póst (studentafelag@ru.is) sem fyrst - síðasta lagi föstudaginn 16.október.
