Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR
Fréttir

Háskóladagurinn í dag, 12-16

Bjóðum alla velkomna í HR í dag

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur Háskóladaginn kl. 12:00 í Háskólanum í Reykjavík og afhendir verðlaun vegna Hugmyndasamkeppni HR.

Í Háskólabíó verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Keili og Listaháskóla Íslands. Einnig verður þar kynning á háskólanámi í Danmörku og Svíþjóð, sjá nánar á www.danmark.is. 

Í Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Öskju og Háskólabíó verður kynning á námi við Háskóla Íslands.

Háskólinn á Bifröst kynnir námsframboð í Norræna húsinu. Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands kynna námsframboð sitt í húsakynnum HR í Nauthólsvík. 

Fríar rútuferðir milli staða  á tuttugu mínútna fresti. Ferðir frá HÍ, Háskólabíó og HR.

 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica