Ljósmyndakeppni Stúdentafélags HR og Háskólans í Reykjavík
Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík hefur í vetur staðið fyrir ljósmyndasamkeppninni „Skapandi skóli“.Bestu myndirnar voru verðlaunaðar í vikunni og veitti rektor HR, dr. Svafa Grönfeldt, verðlaunin.
Í tengslum við keppnina stóðu HR, Stúdentafélagið og Baldur Kristjáns ljósmyndari fyrir ljósmyndanámskeiði í vetur og sóttu rúmlega 90 nemendur námskeiðið. Á námskeiðinu fór Baldur yfir grunnþætti ljósmyndunar, s.s. myndauppbyggingu og myndvinnslu.
Nú stendur yfir ljósmyndasýning í Kringlunni þar sem sjá má nokkur þeirra verka sem nemendurnir unnu á námskeiðinu og sendu inn í ljósmyndakeppnina. Sýningin stendur til 19. maí.
