Byggingafélag námsmanna
Aðalfundur Byggingafélags námsmanna fór fram 30. apríl síðastliðinn. Kosnir voru þrír nýjir aðalmenn í stjórn og tveir til vara. Fyrir hönd Háskólans í Reykjavík sitja nú í stjórn félagsins Mikael Arnarson viðskiptafræðinemi og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar við skólann ásamt Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur lögfræðinema sem varamaður.
Stúdentafélagið óskar þeim til hamingju og vitum við að þau verða flottir fulltrúar Háskólans í Reykjavík hjá byggingarfélaginu.
