Háskólablaðið mótað!
Háskólablaðið er nýtt, veglegt og framsækið málgagn gefið út af nemendum við Háskólann í Reykjavík.
Háskólinn í Reykjavík er skóli 21. aldarinnar; kraftmikill alþjóðlegur háskóli sem er fyrsti valkostur þeirra sem vilja framsækið og skapandi nám.
Við skólann eru starfandi sjö grunnnámsdeildir, fjöldi masterkúrsa, frumgreinasvið auk opins háskóla.
Blaðið verður nýtt til að að láta rödd háskólanema ná til þjóðfélagsins alls. Efnistök blaðsins eru í höndum nemenda og endurspegla þá flóru einstaklinga sem stunda hér nám. Viðtöl, pistlar, greinar, myndaþættir og svo mætti lengi telja verða því meðal umfjöllunarefna blaðsins. Með blaðinu viljum við einblína á jákvæða þróun í samfélaginu þrátt fyrir undangenga erfiðleika.
Einkunnarorð blaðsins eru bjartsýni,nýsköpun, frumkvæði, hvati og jákvæðni.
Háskólablaðið verður 100 blaðsíður að lengd og upplag þess 10.000 eintök auk þess sem blaðið mun verða aðgengilegt á rafrænu formi. Blaðinu verður dreift á fjölfarna almenningsstaði og í markpósti til allra nemenda skólans.
