Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

KILROY til Íslands

7.9.2010

Miðvikudaginn 8. september verður ferðaskrifstofan KILROY með kynningu við Málið, matstofu HR-inga, en fyrirtækið hefur hafið starfsemi á Íslandi. KILROY er alþjóðleg ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýra- og bakpokaferðum fyrir ungt fólk og námsmenn og er fremst á sínu sviði á Norðurlöndum. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar í Kaupmannahöfn en starfsmenn þaðan munu leggja leið sína til landsins í þeim sérstaka tilgangi að kynna þjónustu sína fyrir íslenskum háskólanemum.
Kynningin stendur yfir frá kl. 9:30-16.
Sýnd verða myndbönd af heimasíðunni, kilroy.is, kynntar verða ferðir til framandi slóða í gegnum KILROY travels og ráðgjöf sem í boði verður fyrir íslenska námsmenn sem vilja fara í nám erlendis í gegnum KILROY education. Einnig verður hægt að skrá sig í heimsreisuhappdrætti KILROY á staðnum en útdrátturinn fer fram á opnunarhátíðinni sem fram fer kvöldið eftir, 9. september kl 20, á tónleikastaðnum Faktorý (gamla Grand Rokk).

Nemendur eru hvattir til að mæta á kynninguna og spyrja sérfræðinga í bakpoka- og ævintýraferðum spjörunum úr um allt sem viðkemur ferðamennsku eða námi á framandi slóðum
. Fyrir frekari upplýsingar sjá fréttatilkynningu á heimasíðunni:
http://education.kilroy.is/Fr%E9ttir/kilroy_goes_to_iceland.htm<http://education.kilroy.is/Fr%25E9ttir/kilroy_goes_to_iceland.htm>.


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica