Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR
Fréttir

Breytingartillögur LÍN

Kæru nemendur,

Nú á dögunum voru samþykktar breytingartillögur af meirihluta stjórnarLánasjóðs Íslenskra Námsmanna á reglum sjóðsins. Fulltrúar nemenda í stjórn LÍN neituðu að samþykkja breytingartillögurnar enda er ljóst að þær hafa gríðarlega hagsmunaskerðingu fyrir stóran hluta námsmanna í för með sér.

Stúdentaráð háskólanna hafa mótmælt harðlega fyrirhuguðum breytingum og krafist þess að Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra,endurskoði tillögurnar í ljósi þeirra gífurlegu fjárhagslegu áhrifa sem þetta hefur á námsmenn til hins verra. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær breytingar sem boðaðar eru og hvetjum við alla til að kynna sér þær vel.

Eftirfarandi er jafnframt hlekkur á undirskriftarlista sem hefur verið stofnaður til að sýna einhug námsmanna í þessu máli og þrýsta á menntamálaráðherra: http://www.petitiononline.com/shi10/petition.html.
Allir eru hvattir til að láta sig málið varða og skrifa undir.

Þær breytingar sem boðaðar eru:

-        Lágmarksviðmið um námsframvindu hækkað úr 20 einingum á ári í 18
einingar á önn, og 12 einingar fyrir sumarönn.

-        Námsmaður sem lýkur fleiri en 60 ECTS einingum á námsárinu í sama
námsferli á ekki lengur rétt á að nýta þær til frekari láns innan ársins. Þó helst réttur til þess að fá viðbótarlán vegna náms á sumarönn að hámarki 20 eininga.


-        Námsmaður sem lýkur fleiri en 30 einingum á misseri á rétt á að
nýta umfram einingarnar á öðru misseri sama námsárs svo framarlega sem
lágmarksárangri er náð á því misseri, þ.e. 18 einingum.


-        Breyttar reglur um lán til foreldra (bæði einstæðra og í sambúð).
Í stað þess að framfærsla hækki um X mikið fyrir hvert barn fyrir hverja
ECTS-einingu sem lokið er, breytist stuðullinn nú eftir því hversu mörg
börnin eru. Sem dæmi fær einstætt foreldri um 8.142 kr. fyrir fyrsta barn
fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er, fyrir annað barn reiknast 7.991
kr. (95%), þriðja barn 6.730 kr. (80%), fjórða barn 6.309 kr. (75%) og
fimmta barn og fleiri 5.888 kr. (70%) fyrir hverja ECTS-einingu. Reglan
var sú að hlutfall upphæðarinnar var ekki skert eftir fjölda barna.

-        Umsóknarfrestur fyrir lán lýkur nú 1. desember 2010 vegna náms
haustið 2010, 1. maí 2011 vegna náms vorið 2011 og 1. júlí 2011 vegna náms
sumarið 2011.

Bestu kveðjur,
f.h. Stjórnar SFHR
Magnús Júlíusson, formaður


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica