Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR
Fréttir

Stjórn 2009-2010 kveður

Kæru HR-ingar !!
 
Þann 26. mars s.l. var kosin ný stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík fyrir komandi starfsár og munu hana skipa; Magnús Júlíusson formaður, Benedikt Bergmann Arason varaformaður, Mardís Heimisdóttir gjaldkeri og Dagný Jónsdóttir meðstjórnandi.
 
Um leið og fráfarandi stjórn Stúdentafélagsins vill þakka kærlega fyrir s.l. starfsár, viljum við segja ykkur frá helstu verkefnum sem stjórnin hefur glímt við í vetur.
 
HAGSMUNAMÁL NEMENDA
Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN)
Á starfsárinu vann SFHR í nánu samstarfi við SHÍ og Rakel Lind Hauksdóttur, fulltrúa HR í stjórn LÍN, að bættum kjörum fyrir námsmenn. Í júlí s.l. stóðu námsmannahreyfingarnar saman að samstöðufundi á Austurvelli þar sem óbreyttum kjörum var mótmælt. Eftir þennan fund fór að rofa til í hagsmunabaráttunni og náðu þessar námsmannahreyfingar saman þeim árangri að grunnframfærsla hækkaði.
 
Landssamband íslenskra háskólanema (LÍH)
Á haustmánuðum var Landssamband íslenskra háskólanema stofnað. Í því eiga sæti formenn allra stúdentafélaga á landinu og varamenn. Félagið er hugsað sem samstarfsvettvangur stúdentahreyfinga um sameiginleg hagsmunamál.
 
Byggingafélag námsmanna (BN)
Eitt af fyrstu verkefnum nýkjörinnar stjórnar Stúdentafélagsins var að kynna sér málefni BN. Aðalfundur félagsins var haldinn í lok apríl 2009 þar sem þrír HR-ingar voru kjörnir í stjórn félagsins. Tveir aðalmenn; Mikael Arnarson nemi í viðskiptadeild og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR auk eins varamanns Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur nema í lagadeild.
 
Málið, mötuneyti Háskólans í Reykjavík
Fljótlega eftir að skóli hófst á vorönn 2009 byrjuðu nemendur skólans að leita til Stúdentafélagsins vegna óánægju með nýtt mötuneyti skólans.  Það sem nemendur kvörtuðu einna mest yfir var hátt vöruverð og lítið úrval. Frá nóvember 2009 ákvað stjórn félagsins að hefja mánaðarlegar verðkannanir þar sem helstu vörutegundir Málsins voru bornar saman við sömu eða sambærilegar vörutegundir Hámu, mötuneyti Háskóla Íslands. Í janúar og febrúar voru næstu verðkannanir teknar og var staða Málsins ekki hagstæði gagnvart Hámu. Í lok febrúar skrifaði stjórn Stúdentafélagsins bréf til yfirvalda skólans þar sem málavextir voru listaðir upp og þeim gerð grein fyrir alvarleika málsins. Eftir fundi með forsvarsmönnum Málsins og HR náðist það í gegn að Málið myndi lækka verð hjá sér og auka vöruúrval. Vikurnar eftir fundinn bar á jákvæðum breytingum og jókst úrvalið og almennt lækkaði vöruverð. Hefur vöruverð þá lækkað um 9% frá því að stjórnin fór að taka á þessu máli.
 
Trúnaðarmenn
Á þessu starfsári setti stjórn SFHR sér það markmið að koma á trúnaðarmannakerfi nemenda inn í allar deildir skólans, en áður fyrr hafði það tíðkast í einstaka deildum. Þessi breyting á að verða til þess að allir nemendur skólans hafi einhvern samnemenda af sínu ári sem þeir getað leitað til með þau málefni sem þeir eru ósáttir með. Þetta kerfi var samið í samstarfi við forsvarsmenn deildanna og í samstarfi við formenn aðildarfélaga hverrar deildar. Það mun svo verða hlutverk aðildarfélaga í samstarfi við deildirnar að skipa einstaklinga, einn af hverju ári, sem trúnaðarmenn. Trúnaðarmenn skulu ekki vera kosnir heldur skipaðir eftir vel auglýst umsóknarferli af hálfu aðildarfélaga og/eða forsvarsmanna deildanna.
 
Fulltrúi nemenda í Námsráði HR
Á starfsárinu hóf varaformaður SFHR setu í Námsráði skólans. Námsráðið fundar reglulega um skipulag náms og annað sem snertir beint nám við skólann. Stjórn SFHR telur það mikið hagsmunamál að hafa náð þessum fulltrúa inn í ráðið þar sem nemendur geta nú komið hagsmunum sínum á framfæri víðar.
 
Fundir með Rektor

Ákveðið var að fjölga fundum stjórnar SFHR og rektors og eru þeir nú haldnir hálfsmánaðarlega eftir að nýr rektor tók við. Þetta var gert til þess að auðveldara væri fyrir SFHR að fylgjast með því sem er að gerast innan HR sem hefur áhrif á hagsmuni nemenda en einnig til að auðveldara væri að leysa úr flækjum í samstarfi við stjórn skólans þegar að hagsmunum nemenda er vegið á einhvern hátt.
 
VERKEFNI SFHR
Háskólablaðið
Á árinu var Háskólablaðið gefið út í fyrsta sinn í langan tíma. Ritstjórn blaðsins 2009-2010 mynduðu eftirfarandi: Anna Kristín Pálsdóttir og Jóhanna Margrét Gísladóttir deildu hlutverki ritstjóra að þessu sinni, Anna Moiseeva markaðsstjóri, Kristín Grímsdóttir auglýsingastjóri, Sandra Kristjánsdóttir listrænn stjórnandi, Jóhann Valur Sævarsson hönnuður og Heiðar Eiríksson ljósmyndari. Háskólablaðinu er ætlað að koma út einu sinni á starfsári. Fyrsta tölublað Háskólablaðsins leit dagsins ljós 4.febrúar 2010. Blaðið, sem var einkar veglegt,  var gefið út í 10.000 eintökum og var um 100 síður.
 
Samstarfssamningar
Stjórn SFHR gerði nokkra samstarfssamninga á starfsárinu. Aðalstyrktaraðilar Stúdentafélagsins 2009-2010 voru Atlantsolía, Vífilfell og Vodafone. Einnig voru gerðir samningar við Sporthúsið og Ásbjörn Ólafsson.
 
Gospelkór SFHR
Sumarið 2009 ákvað Stúdentafélagið í samstarfi við Elínu Halldórsdóttur tónlistarkonu, að stofnaður yrði kór innan skólans.
Kórinn er ætlaður öllum HR-ingum, nemendum sem og starfsfólki og ekki er krafist tónlistarlegs bakgrunns. Markmið  með starfsemi kórsins er að efla tónlistarlíf innan skólans.
Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri innan sem utan skólans og leggur áherslu á létta dægurtónlist ásamt gospeltónlist.
 
Klúbbastarf
Stjórn SFHR beitti sér fyrir stofnun klúbba fyrir nemendur við skólann. Fyrir áramót var stofnaður spilaklúbbur og eftir áramót fótboltaklúbbur, íþróttaklúbbur og sjósundsklúbbur. Spilaklúbbur HR hélt 12 pókermót yfir starfsárið. Samstarfsamningur var gerður við Sporthúsið og hafa nemendur HR aðgang að tveimur fótboltavöllum þar á föstudögum frá 14:30 til 15:30.
 
Tengsl SFHR og Heilsustefnu HR
Í samstarfi við Heilsustefnu HR og kennslu- og lýðheilsudeild fékk félagið aðgang að stóra sal Valsheimilisins alla miðvikudaga frá 13:30 til 15:00 þar sem íþróttaklúbburinn nýtir aðstöðuna.
 
Fatasöfnun í samstarfi við Fræið
Fræðið og Stúdentafélagið stóðu fyrir fatasöfnun til styrktar Fjölskylduhjálpar Íslands í lok nóvembermánaðar.
 
Kynningarmyndband SFHR 2010
Í upphafi skólaárs leitaði markaðssvið HR til Stúdentafélagsins við gerð á kynningarmyndbandi fyrir skólann. Helga Bjarnadóttir og Sigdís Ágústsdóttir tóku verkefnið að sér auk þess var myndbandið unnið í góðri samvinnu við stjórn Stúdentafélagsins. Formenn og stjórnarmeðlimir aðildafélaga SFHR tóku öll þá í hugmyndavinnunni á bak við myndbandið. Ingi Lárusson kvikmyndagerðamaður kom að handritagerð og sá um alla tæknivinnu við gerð myndbandsins.
 
VIÐBURÐIR SFHR
Flutningar HR, gangan yfir í Vatnsmýrina
SFHR sá, ásamt aðildarfélögum og yfirstjórn skólans, um skipulagningu á göngunni milli Ofanleitis og Vatnsmýrar þann 11. janúar síðastliðinn. Hringt var í alla nemendur skólans og þeir hvattir til að taka þátt sem skilaði sér í því að rúmlega 1000 nemendur og starfsfólk gengu fylktu liði með kyndla og þjóðfána þeirra 30 landa sem nemendur og starfsfólk koma frá. HR andinn komst því örugglega til skila í Nauthólsvíkina.
 
Góðgerðarleikur í knattspyrnu HR vs. HÍ
Stúdentafélag HR og Stúdentaráð HÍ héldu í fyrsta skiptið góðgerðarleik í knattspyrnu laugardaginn 31.október 2009 í Kórnum Kópavogi. Ákveðið var að styrkja Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein um allan ágóða af leiknum. Færustu knattspyrnumenn beggja skóla tóku þátt, Krisinn Jakobsson og hans aðstoðarmenn dæmdu leikinn, Valtýr Björn lýsti leiknum og Willum Þór Þórsson og Svafa Grönfeldt þjálfuðu okkar menn. Stjörnulið Háskólans í Reykjavík lagði Háskóla Íslands að velli í fyrsta opinberaleik skólanna. Skoruðu okkar menn eina mark leiksins og gengu því af velli sem óumdeildir sigurvegarar og háskólameistarar í knattspyrnu árið 2009. Alls söfnuðust rúmlega 300.000 krónur á leiknum.
 
Draumalandið          
Í apríl 2009 fjölmenntu HR-ingar í bíó á sýninguna Draumalandið í boði SFHR.
 
Kynningarferð í nýbyggingu HR við Nauthólsvík
Um miðjan nóvember hélt SFHR kynningarferð um nýbyggingu skólans við Nauthólsvík. Rúmlega 300 nemendur gerðu sérð ferð og skoðuðu húsakynnin í fylgd leiðsögumanna.
 
Ólympíuleikar Stúdentafélagsins
Ólympíuleikar HR voru haldnir vikuna 28.september til 2.október 2009. Yfir vikuna kepptu deildirnar sín á milli í fótbolta, sjósundi, fifa, paintball og fússball.  Hápunktur Ólympíuleikanna, föstudagurinn 2.október var í Vodafonehöllinni, þar sem keppt var í bandý, dodgeball, fitness, hreystisbraut og limbó! Á Ólympíuleikunum var boðið upp á ávexti, sódavatn og orkudrykki í boði SFHR og Vífilfells, sem og pylsur og coke í boði AO.Um kvöldið var sameiginlegt partý allra deilda einnig haldið í Valsheimilinu þar sem verðlaunaafhending fór fram. Pragma félag verkfræðinema vann leikana.
 
Sameiginleg árshátíð allra deilda HR
Í byrjun október auglýsti Stúdentafélagið eftir áhugasömum nemendum til þess að halda utan um og stýra Árshátíð HR 2010. Fjölmargir nemendur sýndu verkefninu áhuga og árshátíðarnefnd var skipuð eftirfarandi aðilum: Inga Tinna Sigurðardóttir og Olga Lilja Ólafsdóttir verkefnastjórar, Mardís Heimisdóttir gjaldkeri, Birnir Egilsson, Rakel Ósk Guðbjartsdóttir og Tómas Helgi Stefánsson.
Sameiginleg árshátíð allra deilda HR var haldin í Vodafonehöllinni, Hlíðarenda 12.mars 2010. Þema kvöldsins var CASINO og fengu allir árshátíðargestir að upplifa töfra LAS VEGAS. Hátt í 1000 gestir mættu á atburðinn.
 
GANGI YKKUR VEL SÍÐUSTU METRANA Í PRÓFUNUM OG TAKK KÆRLEGA FYRIR FRÁBÆRT ÁR!

BESTU KVEÐJUR,
FRÁFARANDI STJÓRN SFHR; SUNNA, NANNA KRISTÍN OG KRISTJÁN VALGEIR
 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica