Sumarvinna við framsækin nýsköpunarverkefni
Kæru HR ingar
Eftirfarandi tilkynning barst frá Innovit, þeir sem eru að leita sér að spennandi sumarstarfi ættu endilega að kynna sér málið!
Ert þú komin/n með spennandi og krefjandi vinnu í sumar?
Við hjá Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetri, leggjum metnað okkar
í að tengja saman framúrskarandi háskólanema við íslenskt atvinnulíf í
gegnum framsækin nýsköpunarverkefni.
Með nýsköpunarverkefnum Innovit fá leiðtogar og stjórnendur
framtíðarinnar tækifæri til að þroska hæfileika sína og öðlast reynslu
í krefjandi umhverfi öflugra fyrirtækja í miklum vexti. Um fjölbreytt
verkefni er að ræða en nýsköpunarverkefni Innovit samanstanda meðal
annars af:
- Sumarvinnu hjá sprotafyrirtækjum.
- Nýsköpunarráðgjöf- og verkefnum fyrir framsækin stærri fyrirtæki.
Umsóknarfrestur um sumarvinnu við nýsköpun í gegnum Innovit rennur út
Á miðnætti fimmtudaginn 22. Apríl nk. Áhugasamir eru beðnir um að senda ferilskrá á
netfangið sumarvinna@innovit.is fyrir þann tíma.
Allar nánari upplýsingar verða veittar í gegnum sama tölvupóstfang.
Háskólinn í Reykjavík er samstarfsskóli Innovit og því hafa allir nemendur
skólans tækifæri á að sækja um sumarstörf við nýsköpun. Óskað er eftir
umsækjendum með fjölbreyttan bakgrunn úr öllum deildum.
Bestu kveðjur,
Andri Heiðar Kristinsson
Framkvæmdastjóri Innovit
