Ný stjórn SFHR 2010-2011
Þann 26.mars s.l. var kosin ný stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík fyrir komandi starfsár 2010-2011 og munu hana skipa eftirfarandi:
Magnús Júlíusson formaður SFHR
Benedikt Bergmann Arason varaformaður SFHR
Mardís Heimisdóttir gjaldkeri SFHR
Dagný Jónsdóttir meðstjórnandi SFHR
Úr stjórn fara Sunna Magnúsdóttir formaður, Nanna Kristín Tryggvadóttir varaformaður og Kristján Valgeir Þórarinsson gjaldkeri. Fráfarandi stjórn Stúdentafélagsins 2009-2010 þakkar fyrir frábært ár, gott samstarf við skólayfirvöld og öll aðildafélög SFHR.
Við óskum nýkjörri stjórn til hamingju og óskum þeim góð gengis á komandi ári.
