Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Sumar starfsreynsla AIESEC erlendis

28.3.2010

Hvað ætlar ÞÚ að gera í sumar?

SUMAR Hvernig væri að gera eitthvað öðruvísi í sumar og víkka sjóndeildarhringin?  
Eru starfaskipti á vegum AIESEC eitthvað fyrir þig?
AIESEC hefur upp á að bjóða mjög fjölbreytt störf sem skiptast í 4 svið: samfélagsaðstoð, kennsla stjórnun og tæknistörf

REYNSLA Hefur þú áhuga á að nýta sumarið til að safna í reynslubankann? Viltu öðlast starfsreynslu á alþjóðlegum grundvelli? Viltu kynnast fólki frá öllum heimshornum? Og kannski kynnast ÞÉR betur í leiðinni?  
 
AIESEC eru stærstu alþjóðlegu stúdentareknu samtök í heiminum með starfsemi í meira en 107 löndum. Samtökin eru vettvangur leiðtogaþjálfunar og veita ungu menntafólki tækifæri til að öðlast haldbæra reynslu á sínu sviði í sínu heimalandi og erlendis samhliða háskólanámi sem mun nýtast þeim bæði almennt og einnig þegar komið er út í atvinnulífið
 
ERLENDIS Viltu fá tækifæri til að búa og vinna í framandi landi? Fyrir það að fara í starfaskipti með AIESEC greiðirðu ferðakostnað ásamt 40.000 krónur fyrir aðgang að gagnabanka. Gagnabanki hefur að geyma alla starfsmöguleika sem AIESEC býður
uppá erlendis og þannig getur þú fundið þitt starf. Flest störfin eru ólaunuð en  þér er séð fyrir húsnæði,mat og stuðningsnet á meðan þú ert úti.

Umsóknarfrestur er 30. mars og hægt er að sækja um á netinu.








 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica