Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Gjörningur Gospelkórs HR

26.3.2010

Gospelkór Háskólans í Reykjavík verður með sönggjörning í húsakynnum HR við Nauthólsvík í hádeginu dag. Dagskráin hefst kl. 12.30 þegar um 160 nemendur Háteigsskóla taka lagið ásamt Gospelkór HR á göngum skólans.

Kórinn vill með þessum gjörningi lífga upp á daginn.

Kl. 13.00 stígur Geir Ólafsson söngvari á svið og hálftíma síðar rappar Ástþór Óðinn fyrir gesti og gangandi. Kl. 14 lýkur Gospelkórinn gjörningnum með því að taka nokkur vel valin lög.

Gospelkór Háskólans í Reykjavík var stofnaður haustið 2009. Á þeim stutta tíma sem kórinn hefur starfað hefur hann margsinnis komið fram opinberlega, svo sem í Árbæjarkirkju, hjá Hjálpræðishernum, á Café Rosenberg og nú síðast á jólatónleikum í Iðnó.

Kórstjóri er Elín Halldórsdóttir óperusöngkona.


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica