Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Verkefnastjórn Gulleggsins 2010

Innovit

25.9.2009

Í lok September var skiptuð verkefnastjórn Gulleggsins 2010. Þrír fulltrúar frá HR sitja í stjórinni og óskum við þeim innilega til hamingju.

Tilkynning frá Innovit: Verkefnastjórn Gulleggsins 2010

Búið er að setja saman stjórn Gulleggsins 2010. Gulleggið er frumkvöðlakeppni Innovit þar sem keppt er um bestu viðskiptahugmyndina og gerð viðskiptaáætlunar, en keppnin er byggð á sambærilegri keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og Venture Cup á norðurlöndunum. Stjórnin er sett saman úr átta nemendum í samstarfsháskólum Innovit. Skipulagning keppninnar er þegar hafin en reiknað er með að hún hefjist formlega í janúar 2010.

Í verkefnastjórn Gulleggsins 2010 eru:

Adam Hoffritz, nemi í mannfræði við HÍ
Anna Kristín Kristinsdóttir, nemi í viðskiptafræði við HR
Guðmundur Ingi Einarsson, nemi í rafmagnstæknifræði við HR
Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, nemi í viðskiptafræði á Bifröst
Sigurjóna Hreindís Sigurðardóttir, nemi í stjórnmálafræði við HÍ
Sonja H. Berndsen, nemi í lögfræði við HR
Steinn Hafliðason, MPM í verkefnastjórnun og meistaranemi í hagfræði við HÍ
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir, meistaranemi í alþjóðaviðskiptum á Bifröst



 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica