Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Pylsur & Coke í boði Atlantsolíu

28.1.2010

Í hádeginu í dag mun Atlantsolía koma sér fyrir hjá okkur með lukkuhjól og pylsuvagn. Þeir mæta á slaginu 11:30 og verða til 13:00, svo svangir HR-ingar geta pulsað sig upp fyrir framan aðalinngang skólans.

Einnig mun Atlantsolía veita 5 kr. afslátt á bensínstöðinni í Öskjuhlíð í tilefni dagsins.
 
Eins og áður hefur komið fram er Atlantsolía einn helsti styrktaraðili árshátíðarinnar og er því nauðsynlegt að allir HR-ingar tryggi sér lykil svo að árshátíðin verði sem veglegust!
Hægt er að sækja um lykil ***HÉR*** eða fá hann hjá okkur í dag og snúa lukkuhjólinu um leið.
 
Að gefnu tækifæri viljum við minna á BINGÓ-IÐ sem haldið verður í kvöld kl. 20.00 á SPOT í Kópavogi, Bæjarlind 6. Það verða glæsilegir vinningar í boði sem enginn má missa af !
Að loknu Bingó-inu mun svo trúbador halda uppi stemmningunni.
 
Hlökkum til að sjá ykkur!

kv.Árshátíðarnefnd
 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica