Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Gospelkór SFHR leitar nýrra félaga

25.1.2010

Til allra áhugasamra um góða sönglist og látúnsbarka nær og fjær!!!
 
Innan HR er nú rekin Gospelkór HR en starfsemi hans byrjaði á haustönn og hann hefur þegar að baki stóra tónleika auk nokkurra spennandi uppákoma innan sem utan skólans.  
 
Framundan eru spennandi verkefni hjá kórnum, sem er að undirbúa sig undir æfingaferðalag (helgarferð) og kemur fram við ýmis tækifæri á næstu vikum auk einna stóra tónleika í vorinu.  Aðalverkefni kórsins er þó utanlandsferð næsta haust að öllum líkindum á virta tónlistarhátíð á Ítalíu.  
 
Það er skemmtilegt félagslíf í kringum kórinn og í honum eru nemendur úr öllum deildum skólans.  Kórinn leggur áherslu á gospeltónlist sem og nýrri gospellög auk þekktra dægurlaga og er að hefja æfingar á syrpu af lögum úr smiðju Michaels Jackson.   
 
Áhugasamir hafi samband við kórstjórann Elínu Halldórsdóttur í síma: 844-1596 eða Huldu Jóns Tölgyes formann í síma 690-3125 eða í gegnum póst kórsins gospel@ru.is. Nýir meðlimir verða teknir inn í kórinn á næstu 2 vikum eða til 7. febrúar.  Ekki verður opið fyrir nýjar umsóknir í kórinn fyrr en eftir Ítalíuferðina, sem verður í september.
 
Með góðri kveðju og þakklæti:
 
Elín Halldórsdóttir, tónlistarkona og stjórn Gospelkórs SFHR


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica