Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Skiptibókamarkaður.is

14.1.2010

Síðastliðið haust var opnaður nýr vefur, www.skiptibokamarkadur.is, þar sem nemendur á framhalds- og háskólastigi geta keypt og selt bækur milliliða- og kostnaðarlaust. Þar geta þeir sem vilja selja/óska eftir bók skráð sig inn á síðuna og skráð viðkomandi bók í framhaldinu.  Notkun á vefnum er algjörlega gjaldfrjáls.

Nemar virðast hafa tekið vel í þessa nýjung en á fyrstu 13 dögum nýjar ársins hafa verið skráðar inn 3.300 bækur til sölu. Síðastliðið haust voru seldar rúmlega 4.000 bækur að andvirði rúmlega 16 milljóna. Algengt er að verðið á notuðum bókum sé í kring um helmingur af útsöluverði nýrra og því er eftir töluverðu að slægjast fyrir íslenska nema.

Bókakostnaður háskólanema er u.þ.b. 40 til 60 þúsund krónur á önn að því gefnu að bækurnar séu keyptar nýjar og bókakostnaður menntaskólanema ívið lægri. Því getur það munað töluverðum fjármunum á því að kaupa notaðar bækur auk þess sem seljendurnir fá eitthvað fyrir bækurnar sínar sem hefðu margar hverjar hefðu legið ónotaðar upp í bókahillu. Varla þarf að minnast á hversu umhverfisvæn þessi leið er til þess að gefa gömlu skólabókunum nýtt líf.

English version:

Last autumn the website Skiptibokamarkadur.is was established. It is a website for students in Iceland where they can advertise  used books for free. Those who are interested can log on to the website and advertise their book for sale or request a book they need. All use of this website is free.

Students seems to be pleased with this new option but in the first 13 days in 2010 3.300 used books were registered. Last autumn 4.000 books were sold through the website and estimated value was 16 million icelandic krona. Common price for used books which are advertised at the site is a about half of the price in bookstores.

For students at Reykjavik University, the amount spent on new books ranges between 40 to 60 thousand kronur per semester on average. Therefore, the option to buy used books can make a lot of difference in terms of expenditure. Also, an opportunity rises for people to rid themselves of unused books and earn a little in return. Last but not least, students who take this approach are also protecting the environment.

An English version of the site is currently unavailable but is under construction and should hopefully be up and running in the near future.


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica