Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Hækkuð framfærsla hjá LÍN

9.9.2009

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að hækka grunnframfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 20%, samhliða ýmsum aðgerðum sem ætlað er að tryggja sparnað í námslánakerfinu og atvinnuleysistryggingakerfinu sem þessari hækkun svarar.

Í aðgerðunum nú felst:
-    Grunnframfærsla námslána hækkar í kr. 120.000,-  á mánuði.
-    Tekjuskerðingarhlutfall námslána eykst úr 10% í 35%.
-    Tekið verður upp 750.000 króna frítekjumark sem verður fimmfalt fyrir þá einstaklinga sem eru að hefja nám og hafa verið á vinnumarkaði.
-    Framfærsla einstaklinga í heimahúsum stendur í stað og verður þannig 50% af grunnframfærslu.
-    Jafnframt er gert ráð fyrir að skólagjaldalán verði endurskoðuð í úthlutunarreglum fyrir skólaárið 2010-2011.

Dregið verður úr möguleikum á að sækja einingabært háskólanám samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Atvinnuleysisskrá er nú að fullu samkeyrð við nemendaskrár háskólanna.
Afnuminn verður réttur námsmanna til töku atvinnuleysisbóta í sumarleyfi skóla.

Gert er ráð fyrir því að framfærsla hækki eða standi í stað hjá miklum meirihluta námsmanna eða allt að 80%. Framangreindar tillögur um breytingar á tekjuskerðingarviðmiðum koma sér best fyrir þann hóp námsmanna sem hefur minnstar tekjur.

Einstaklingar í leiguhúsnæði með undir 1.760 þús. í árslaun með námi fá hækkun miðað við núverandi kerfi en þeir sem eru yfir
þessum mörkum fá minna.  Einstaklingar í leiguhúsnæði með tekjur yfir 3.850 þús. kr. á ári fá ekki lengur námslán eftir breytingarnar. Þær lánsáætlanir sem þegar hafa verið gefnar út af LÍN vegna skólaársins 2009-2010 gilda skv. áður útgefnum úthlutunarreglum.  

Hins vegar geta námsmenn afturkallað þær umsóknir og sent inn nýja skv. breyttum reglum.

Þessi aðgerð er liður í heildstæðri stefnumörkun sem nú á sér stað á vegum beggja ráðuneyta til að hvetja atvinnulausa til mennta og draga þannig úr atvinnuleysi og styðja við efnahagslega framþróun byggða á aukinni færni og þekkingu. Lykilatriði í því efni er að bæta menntaúrræði fyrir atvinnulausa og auðvelda atvinnulausum með ýmsum hætti að hefja nám.

Sérstök áhersla er nú lögð á þróun menntaúrræða fyrir þann hóp atvinnulausra sem einungis hefur lokið grunnskólaprófi en sá hópur er fjölmennastur á atvinnuleysisskrá.

Búist er við tillögum í því efni á næstu vikum.



 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica