Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Tilboðsverð í leikhús fyrir nemendur Háskólans í Reykjavík. Miðinn á kr. 1.800

24.11.2009

Í kjölfar mikillar ánægju með leikhústilboð í október á leiksýninguna Fyrir framan annað fólk í Hafnarfjarðarleikhúsinu bjóðum við núna sérstakt nóvembertilboð á leikritið um næstu helgi.
 
Laugardagskvöldið 28. nóv. kl 20.00
Sunnudagskvöldið  29. nóv. kl. 20.00
 
Miðinn á kr. 1.800. (Almennt miðaverð kr. 2.500.) Hver nemandi getur keypt fleiri en einn miða á þessu verði svo framarlega sem til eru lausir miðar á þessar sýningar.
 
Til að panta miða er hægt að senda  tölvupóst á kristjanmelkorka@simnet.is  eða hafa samband við Hafnarfjarðarleikhúsið s. 555 2222 eða theater@vortex.is.  
 
ATH! Aðeins þrjár sýningar eftir!!!
 
Sýningin hefur hlotið afar góðar viðtökur. Hér að neðan eru brot úr gagnrýni og ummæli gesta af Facebook og bloggsíðum.

leikhus

“Það er einhver hlýleiki yfir þessari nálgun sem gerir það að verkum að leikararnir ná vel til áhorfenda og ekki stóð á viðbrögðum þeirra, það var hlegið dátt í salnum... sýningin er þrælfyndin á köflum...”
Þorgerður E. Sigurðardóttir, Víðsjá RÚV, 5. okt. 2009

“Þau Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir voru bæði mjög góð í sínum hlutverkum … skemmtileg sýning...”
Elísabet Brekkan, Fréttablaðið 5. okt. 2009
 
“…missið ekki af þessari sýningu … Ég hef ekki í ár og daga hlegið jafn innilega í leikhúsi eins og á þessari sýningu!”
Marta B. Helgadóttir, Mbl.bloggið

“...hló ,,frá stefni og aftur í skut" eins og Kolbeinn kafteinn hefði orðað það. Fyndnasta sýningin á fjölunum. Ég öfunda alla sem eiga eftir að fara og þeir hljóta að verða margir áður en yfir lýkur”.
Gerður Kristný, Facebook

”Frábærlega fyndið verk”
Þórarinn Eldjárn, Facebook

"bara gaman... smellið verk og vel unnið... endilega ekki missa af þessu.”
Súsanna Svavarsdóttir, Facebook

”Frábær sýning.”
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Facebook
 
“Myljandi fyndin og frumleg hugmynd hjá Kristjáni Þórði, hófstillt og falleg leikstjórn hjá Melkorku og glimrandi leikur hjá Sveini og Tinnu í hversdagslegu látleysi sínu.” Sævar Sigurgeirsson, Facebook
 
“Það var mikið hlegið, og áhorfendur skemmtu sér fram í fingurgóma”
Erling Ólafsson, blogg á visir.is
 
“Við Ynjur mælum með sýningunni "Fyrir framan annað fólk" í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Bæði til þess að hlæja, og til þess að finna til.”
Ynja.net
 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica