Fréttatilkynning frá Landssambandi íslenskra háskólanema (LÍH)
Fréttatilkynning frá Landssambandi íslenskra háskólanema (LÍH)Föstudagurinn 20. nóvember 2009
Stúdentafélög undirritaðra háskóla á Íslandi hafa stofnað með sér Landssamband íslenskra háskólanema. Stofnfundur félagsins var haldinn föstudaginn 20. nóvember síðastliðinn þar sem farið var yfir nánari útfærslu á starfsemi sambandsins og samvinnu skólanna. Tilgangurinn með stofnun LÍH er að skapa samstöðu í hagsmunabaráttu stúdenta, hækka barátturóm íslenskra háskólanema og efla samtakamátt háskólanna á Íslandi.
Háskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Hólum
Háskólinn í Reykjavík
Landbúnaðarháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Samband íslenskra námsmanna erlendis
