**Nýtt** Gospelkór Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík
Gospel gleði!
Í sumar ákvað Stúdentafélagið í samstarfi við Elínu Halldórsdóttur tónlistarkonu, að stofnaður yrði kór innan skólans.
Kórinn er ætlaður öllum HR-ingum, nemendum sem og starfsfólki! Kórinn er öllum opinn og ekki er krafist tónlistarlegs bakgrunns en auðvitað er það kostur :-)
Stofnfundur og fyrsta æfing verður haldin, þriðjudaginn 1.september næstkomandi. Æfingar kórsins fara fram vikulega í stofu 201, Ofanleiti 2, kl. 20:00.
Endilega skrá sig sem fyrst með því að senda svar á gospel@ru.is
Hlökkum til að sjá marga fallega látúnsbarka :-)
Með gospel-kveðju,
Elín og stjórn Stúdentafélagsins
