Stúdentafélag HR
Stúdentafélag HR

Fræið og Stúdentafélagið standa fyrir FATASÖFNUN í samstarfi við fjölskylduhjálp Íslands á ALÞJÓÐLEGUM ATHAFNADÖGUM!

16.11.2009

Átt þú flík í fataskápnum sem þú vilt gefa - gefa "nýtt líf" og stuðla þannig að aukinni velferð einhvers?

FRÆIÐ og STÚDENTAFÉLAG HR standa fyrir FATASÖFNUN í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands.

Fjölskylduhjálpin þarf mikið magn fatnaðar til að mæta þörfum fjölskyldna sem til félagsins leita nú fyrir jólin og veturinn. Ef við HR-ingar leggjumst á eitt og gefum a.m.k. eina flík á mann safnast yfir 3500 flíkur!

Hrein og velmeðfarin föt á börn sem fullorðna. 16.-20.nóvember 2009. Tekið er við fötum í afgreiðslum skólans í Ofanleiti, Kringlunni og á Höfðabakka.

LEGGJUM LIÐ - TÖKUM VIRKAN ÞÁTT!

FATASOFNUN-2009


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica