Stúdentafélag HR
LÍN nefnd
LÍN nefnd

Lánasjóðsfulltrúi er Skúli Sveinsson meistaranemi í lögfræði við HR og varalánasjóðsfulltrúi er Dagný Jónsdóttir laganemi við HR.

Skúli og Dagný stýra LÍN nefnd innan skólans sem sér um að útbúa ályktanir og upplýsa nemendur um stöðu mála. Nefndin hefur fasta viðtalstíma 1. og 3. þriðjudag í mánuði kl 15 - 16 í herbergi Stúdentafélagsins(M2.02). Vilji nemendur hitta fulltrúana á öðrum tíma er hægt að nálgast þá í gegnum netfangið namslan@ru.is.

Námslán miðast við 102.720 krónur á mánuði fyrir einstaklinga í leiguhúsnæði en mánaðarleg upphæð breytist eftir því hvort einstaklingur býr í heimahúsum eða hefur börn á sínu framfæri. Lánin eru greidd út eftir hverja önn, um miðjan janúar og um miðjan júní. Stúdentar þurfa að ná 20(ECTS) einingum yfir skólaárið til þess að eiga rétt á útgreiddum námslánum. Allar frekari upplýsingar um LÍN og námslán má finna á heimasíðu sjóðsins www.lin.is.

 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica